Please install Flash and turn on Javascript.
Tillaga Viðhafnar kallast Hljóðaklettur og byggist á þeirri meginhugmynd að hver staður eigi sín sérkenni sem þurfi að draga fram og þannig verði til einstakt kennileiti sem eig sér hvergi samanburð í heiminum.
Gimsteinn í jörðu
Íslensk náttúra; bergið, litirnir, formin í umhverfinu og samspil ljóss og skugga eru þau sérkenni sem móta tillöguna, ásamt staðsetningu verkefnisins á Austurhöfninni við hliðina á Arnarhóli með útsýni frá Lækjargötu til Esjunnar. Sú einstaka sjónlína á að halda sér og byggingarnar mega ekki heldur yfirgnæfa byggðina í kring og því er valin sú lausn að reisa tónlistar- og ráðstefnumiðstöðina inni í hólum og hæðum, falda líkt og gimstein í jörðu niðri.
Þannig verður Hljóðaklettur - sem tekur á sig form hæða og hóla með lágreistum húsum - einstakt kennileiti í miðborginni sem er samtímis bæði einstaklega kunnuglegt og skrítið. Göngustígar og aðstaða fyrir mannfagnaði eru utan í hólnum, sem um leið skapar skjól fyrir norðanáttinni.
Hlíð hólsins er þakin íslenskum bergtegundum í bland við mislita glersteina á svæðum þar sem birta þarf að berast inn að degi til en þegar dimma tekur taka þeir á sig margbreytilega liti utanfrá séð, eftir því hvað er um að vera inni í hólnum.
Fágaður stíll undir hrjúfu yfirborði
Skipulagið inni í hólnum er í grófum dráttum þannig að vestast er tónleikasalurinn sem tekur alls 1.700 manns í sæti, austan við hann er æfingarsalur sem tekur 450 manns í sæti, þvínæst kemur ráðstefnumiðstöðin og hótelið sem er austast í hólnum. Hótelið er einnig að mestu leyti neðanjarðar í hinu tilbúna landslagi, fyrir utan nokkur smáhýsi sem draga dám af lágreistri húsagerð miðbæjarins. Í þeim er gistiaðstaða fyrir hótelgesti með útsýni út á flóann.
Ólíkt hrjúfu yfirborði hólsins er umhverfið inni mjög fágað og stílhreint þar sem bogadregnar línur setja svip sinn á allt. Í austur- og vesturenda tónlistarsalarins eru hægt að hleypa inn dagsbirtu ef þarf. Stór gluggi opnast út úr hólnum til sjávar í ráðstefnuhlutanum í miðjum hólnum og sunnan megin er einnig útivistarsvæði, sem nýta má fyrir smærri móttökur og athafnir.





