Vinna við rammaskipulag fyrir miðborgina hófst haustið 2003, á grunedvelli vinningstillögu hugmyndasamkeppninnar um skipulag lóðar við Austurhöfn fyrir tónlistarhús, ráðstefnumiðstöð og hótel (TRH), og voru niðurstöður þess kynntar vorið 2004. Svæðið sem rammaskipulagið nær til er norðan Hafnarstrætis, nær þó inn á Lækjartorg, og frá Sæbraut austan Kalkofnsvegar að Norðurstíg í vestri (sjá yfirlitsmynd).
Við gerð rammaskipulagsins var lögð áhersla á að bera saman valkosti í lausn umferðarmála, þar á meðal að kanna þann möguleika að umferð um Geirsgötu yrði sett í göng neðanjarðar. Einnig voru kannaðar aðrar leiðir til að bæta sem mest aðstæður gangandi vegfarenda og göngutengsl milli miðborgar og tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar. Jafnframt voru athugaðar tiltækar lausnir í bílastæðamálum og nýr veiðlegukantur fyrir skemmtiferðaskip. Í rammaskipulagsvinnunni var einnig horft til möguleika á lóð fyrir höfuðstöðvar Landsbankans og til frekari bygginga, bæði á lóð TR, í tengslum við hana og á Miðbakka.
Ráðgjafarnir sem unnu að gerð rammaskipulagsins fyrir miðborgina eru:






Rammaskipulag