Vorið 2008 ákvað stjórn Faxaflóahafna sf. að hefja undirbúning að opinni hugmyndasamkeppni um þróun og framtíð skipulagssvæðis Gömlu hafnarinnar frá D-reit (norður af Faxagötu) og Ingólfsgarði í austri að Eyjagarði í vestri.
Samkeppninni var hleypt formlega af stokkunum 7. júní 2009, á sjómannadaginn, en undirbúningur að samkeppninni hófst sumarið 2008. Höfðu Faxaflóahafnir sf. og skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar allan undirbúningstímann samvinnu um keppnislýsinguna og gögn hennar auk þess sem sérstakt samráð var haft við samgöngustjóra Reykjavíkurborgar, Austurhöfn TR, Ár bæjarsafn og Minjavernd. Þá var haft samráð við Arkitektafélag Íslands.
Markmið samkeppninnar
Meginmarkmið samkeppninnar var að fá fram frjóar og fjölbreyttar hugmyndir um framtíðarnýtingu og framtíðarskipulag Gömlu hafnarinnar. Að undanskildu aðalskipulagi hefur aldrei verið gert heildarskipulag af þessu svæði þrátt fyrir mikilvægi þess í heildarmynd Reykjavíkur. Með samkeppninni gafst einstakt tækifæri til að skapa í miðborg Reykjavíkur svæði glætt lífi sem tengist höfninni, hafnarstarfsemi og sögu hennar en er um leið mikilvægur hluti miðbæjarins og þess fjölbreytta mannlífs sem þar er með menningarstofnunum, verslunum, þjónustu og íbúðarbyggð.
Skoskur sigur
Tilkynnt var um úrslit í hugmyndasamkeppninni 11. desember 2009 og hlaut arkitektastofa í Edinborg í Skotlandi, Graeme Massie Architects, fyrstu verðlaun í A-hluta hugmyndasamkeppninnar, samkeppni fagfólks. Samstarfsaðili hennar á Íslandi er ráðgjafarfyrirtækið Alta ehf.
Höfundar tveggja tillagna deildu 2.-3. sæti, annars vegar arkitektarnir Björn Ólafs og François Perrot og hins vegar Þorsteinn Helgason, Gunnar Örn Sigurðsson, Páll Gunnlaugsson og Valdimar Harðarson arkitektar FAÍ hjá arkitektastofunni ASK arkitektum ehf.
Viðurkenningu/innkaup fyrir athyglisverða tillögu hlaut Arkibúllan ehf.
Nánari upplýsingar um niðurstöður samkeppninnar:
- http://faxafloahafnir.is/is/hugmyndasamkeppni/nidurstodur/
- http://faxafloahafnir.is/faxafloahafnir/is/stillingar/atburdir/?ew_6_cat_id=52381&ew_6_p_id=22702971
- http://faxafloahafnir.is/faxafloahafnir/upload/files/hafnarbladid/hafnarbladid-des09.html






Faxaflóahafnir - hugmyndasamkeppni