Tónlistarhúsið í Stafangri er dæmi um tónlistarhús við höfn. Haldin var alþjóðleg samkeppni árið 2003 og bárust 105 tillögur. Var undirbúningi og hönnun haldið áfram á grundvelli verðlaunatillögunnar: „I boks“, undirbúningsframkvæmdir hófust haustið 2008 og er stefnt að því að opna húsið árið 2012.
- Aðaltónleikasalurinn verður fyrir 1.500 áheyrendur, forsalur með stórkostlegu útsýni, eins og sagt er.
- Salur 2 verður sérhannaður fyrir magnaða tónlist, þar verða 900 sæti sem hægt verður að fjarlægja og komast þá 1.600-1.900 áheyrendur fyrir standandi.
- Áætlað er að húsið verði 12.800 m² og þar verður heimili Sinfóníuhljómsveitar Stafangurs með aðstöðu og æfingarrýmum.
Sjá nánar á
http://www3.stavanger.kommune.no/bjergsted/konserthuset.nsf/startv3?openform





