Ljósin prófuð fyrir vígsluna
Verið var að prófa Led-ljósin í glerhjúp Hörpu í gærkvöld þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar leið hjá. Tendra á ljósin sem eru hluti af hjúpnum sem Ólafur Elíasson hannaði hálftíma fyrir lok hátíðarhaldanna um menningarnótt á laugardag. Sjá nánar á mbl.is.




