Útisvæðið við Hörpu hlaut verðlaun í flokknum besta norræna almenningsrýmið við afhendingu norrænu arkitektaverðlaunanna sem veitt voru í fyrsta sinn í Gautaborg í gær. Landslag hannaði svæðið í samráði við Batteríið, Henning Larsen Arkitechts og Ólaf Elíasson.
Fréttir
Útisvæðið við Hörpu verðlaunað
Harpa skilar bæði beinum og óbeinum tekjum
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa skilar þjóðarbúinu bæði beinum og óbeinum tekjum samkvæmt nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.
Fjölmenni fylgdist með þegar ljós voru tendruð í glerhjúp Hörpu
Fjölmenni fylgdist með því þegar ljósin í glerhjúpi Hörpu voru tendruð á Menningarnótt og var lýsingin við það tækifæri sérstaklega útfærð til samræmis við sólsetrið og birtuna um kvöldið, bæði í litum og styrkleika.
Lýsing í glerhjúp Hörpu tendruð á Menningarnótt
Mikið verður um að vera á Menningarnótt við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu við Austurhöfnina og ná hátíðarhöldin hámarki þegar ljós verða tendruð í glerhjúp Hörpu í beinni sjónvarpsútsendingu rétt fyrir flugeldasýningu hátíðarhaldanna. Athöfnin er jafnframt þriðji og síðasti atburðurinn í opnunarferli hússins sem hófst með tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í byrjun maí og opnu húsi í framhaldinu fyrir gesti og almenning.
Sex tilboð bárust í hótel við Austurhöfn
Sex formleg tilboð bárust í byggingareitinn vestan við Hörpu sem ætlaður er fyrir hótel, þrjú frá íslenskum aðilum og þrjú frá erlendum aðilum, en frestur til að skila inn tilboðum rann út í dag. Gert er ráð fyrir að niðurstaða í málinu liggi fyrir eftir 4-6 vikur.
Síða 1 af 17






Fréttir