Austurhöfn - tónlistarhús

Þú ert hérna Verkefnið Samkeppnin Tillaga Portusar

Tillaga Portusar

Please install Flash and turn on Javascript.

Hönnunin mótast af áhrifum frá stórbrotinni náttúru Íslands sem er endalaus uppspretta lita, allt frá gullrauðum til himinblámans, með litbrigðum sem geta breyst úr hvítfyssandi öldum í glansandi spegilsléttan sjó. Húsið verður fyrsta sérhannaða tónlistar- og ráðstefnuhúsið af þessari stærð hér á landi og mun skapa fyrsta flokks aðstöðu fyrir sívaxandi tónlistarlíf í landinu auk þess að hýsa ráðstefnuaðstöðu á heimsmælikvarða.

Kristallað form og fjölbreyttir litir
Skelin sem umlykur húsið verður samsett úr strendum stöplum, gerðum úr gleri, speglum og stáli, sem minna á stuðlaberg og gegnsæjan ís. Er meginhugmyndin að skapa krystallað form með fjölbreyttum litum sem sóttir eru í nærliggjandi náttúru og gefur þeim er þess nýtur síbreytileg tilfinningaleg áhrif.
Áhersla er lögð á sýnileika byggingarinnar. þakið gegnir stóru hlutverki í ásýnd hússins. Það endurspeglar breytingar í himinblámanum eftir veðri, árstíma og mismunandi tímum sólarhringsins. Sólskinið mun auka á áhrif minnstu einkenna í ljósi og skuggum og byggingin mun endurspegla glóandi hraunbreiður þegar hún lýsir gullrauðum loga en jökla þegar hún verður ísblá.
Í húsinu er gert ráð fyrir svölum til allra átta á mismunandi hæðum. Stórar þaksvalir eru á milli tónlistarsalarins annars vegar og æfingar og ráðstefnusalar hins vegar. Svalirnar geta nýst fyrir listasýningar og tónlistarviðburði auk þess að almenningi gefst kostur á að njóta sérstaklega heillandi útsýnis yfir flóann og borgina.

Þrír salir undir sama hjúp
Skipulag byggingarinnar er mjög skýrt. Salirnir þrír, tónleikasalur, æfingasalur og ráðstefnusalur, liggja hlið við hlið sem einfaldar allt flæði innanhúss. Lögð er áhersla á að húsið geti hvort sem er nýst allt til stærri viðburða eða að hægt verði að skilja ráðstefnurýmin algerlega frá öðrum rýmum þannig að mismunandi starfsemi fari fram á sama tíma í húsinu, án innbyrðis truflunar.
Fyrir framan húsið verður stórt torg, Reykjatorg, þar sem vatn og gufa leika aðalhlutverk í miklu spilverki. Það má nýta til mannfagnaða utanhúss. Frá Reykjatorgi er gert ráð fyrir nýrri göngugötu yfir á Lækjartorg. Í yfirborði hennar verður glersteinn sem hleypir birtu niður að degi til en raflýsingu upp í myrkri, þannig að gatan verður eins og „ljósá" í borgarlandslaginu.

Umfangsmikil uppbygging
Húsið á að standa að hluta til á landfyllingu í Austurbugtinni. Á vesturhluta lóðarinnar verður hótel í hæsta gæðaflokki sem mun nýtast ráðstefnugestum. Hefur náðst samkomulag við alþjó›legu hótelkeðjuna Starwood Hotels sem telur það mjög áhugaverðan kost að byggja hótelið, sem yrði í senn með hefðbundnum hótelherbergjum og hótelíbúðum og í nánum starfstengslum við tónlistar- og ráðstefnuhúsið.
Tillagan felur einnig í sér umfangsmikla uppbyggingu á aðliggjandi lóðum því vinningshafinn fær að kaupa byggingarrétt og byggja þar fyrir eigin reikning. Alls nemur heildarbyggingarmagnið sem tillagan nær til yfir 80.000 m².

The player will show in this paragraph