Please install Flash and turn on Javascript.
Við hönnunina var sérstaklega litið til nánasta umhverfis og leitast við að láta það falla sem best inn í núverandi skipulag og umhverfi borgarinnar. Húsið er staðsett nyrst á lóðinni og var þá höfð í huga nálægðin við hafið og stórfenglegt útsýni til Esjunnar og yfir Snæfellsnes, jafnframt því sem það blasir við frá miðborginni.
Fjögur blásturshljóðfæri
Grunnhugmyndin er fjögur blásturshljóðfæri, eitt í hverju horni hússins, sem saman mynda eina heild innan íburðarmikils glerhjúps.
Innri veggir hússins endurvarpa síbreytilegri dagsbirtunni á glerhjúpinn og skapa með því breytilega ásýnd hússins, þannig virðist sem húsið breyti um lit eftir því sem birtustigið fyrir utan bygginguna breytist. Með því að varpa mismunandi ljósum á veggina er einnig hægt að skapa það andrúmsloft og þau sjónrænu áhrif sem hæfa fjölbreyttum viðburðum.
Í húsinu eru tveir tónleikasalir; 1.800 sæta aðalsalur og 450 sæta æfingasalur, ásamt ráðstefnusal sem rúmar allt að 750 manns. Auk fless er stórt miðrými, sem nýtist fyrir uppákomur af ýmsum toga, ásamt minni herbergjum fyrir fundi og ráðstefnur. Mikið er lagt í innri umgjörð og sveigjanlega uppröðun og státar hver salur af besta tæknibúnaði sem völ er á. þetta tryggir að húsið nýtist sem best fyrir hinar margbreytilegu uppákomur sem þar munu fara fram.
Nýtt útlit á miðbænum
Tillagan stendur fyrir heildarskipulag 83.000 m2 svæðis við höfnina. Auk tónlistar- og ráðstefnuhúss er þar gert ráð fyrir hóteli, opnu almenningssvæði og nýju verslunarhverfi á tveimur hæðum þar sem finna má fjölbreytta flóru af verslunum, galleríum, kaffihúsum, veitingahúsum og börum, auk íbúðar- og skrifstofuhúsnæðis.
Eitt af aðalsmerkjum svæðisins verður Menningartorg, sem er staðsett vestan við tónlistarhúsið, þar sem hægt verður að halda hina ýmsu viðburði, t.d. tónleika, útimarkaði og aðrar skemmtanir tengdar helstu menningarviðburðum.
Hótelið er staðsett vestan við Menningartorgið, við höfnina, með verslunum á jarðhæð og góðum tengingum fyrir gangandi vegfarendur jafnt sem bílaumferð við gamla miðbæinn.
Við hönnun svæðisins var leitast við að nýta sem best það skipulag sem fyrir er. Þar má t.d. nefna Lækjartorg, sem mun fá meira vægi sem miðpunktur miðbæjarins, og Geirsgötu sem verður breiðstræti með tilheyrandi möguleikum á verslun og þjónustu í framtíðinni. Góðar tengingar eru milli svæðanna norðan og sunnan við Geirsgötuna sem dregur úr umferðarhraða án þess þó að raska flæði umferðarinnar.
Kennileiti höfuðborgarinnar
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verður nýtt kennileiti sem mun breyta ásýnd höfuðborgarinnar og efla menningar- og listalíf á Íslandi. það mun skapa listamönnum af öllum toga nýjan og stórbrotinn vettvang til að tjá list sína og verður svæði› þannig nýr miðpunktur lista og menningar á Íslandi.
The player will show in this paragraph



