Austurhöfn - tónlistarhús

Þú ert hérna Verkefnið

Verkefnið

austurhofnTR-lodin3_1Verkefni Austurhafnar, samkvæmt samningi ríkis og borgar um byggingu tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar frá apríl árið 2002, er að láta byggja og koma í rekstur tónlistarhúsi og ráðstefnumiðstöð í tengslum við hótel við Austurbakka Reykjavíkurhafnar með svokallaðri einkaframkvæmd, þ.e. einkaaðili skyldi annast jafnt hönnun, byggingu, fjármögnun og rekstur mannvirkjanna. 

Setti stjórn félagsins sér strax sem markmið að:

  • Skapa sterka menningarlega ímynd sem dregur athygli alheims að Reykjavík og Íslandi
  • Styrkja stöðu landsins í alþjóðlegri samkeppni á sviði menningar og ferðamála
  • Skapa skilyrði fyrir alþjóðlega menningarviðburði og bæta aðstæður til að taka á móti heimsþekktum listamönnum
  • Auðga íslenskt menningarlíf og skapa alþjóðleg tengsl á sviði menningar
  • Skapa fyrsta flokks aðstöðu fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands