Austurhöfn - tónlistarhús

Þú ert hérna Um Austurhöfn Samráðshópar

Samráðshópar

Samráðshópur stjórnar Austurhafnar-TR
Samráðshópur, skipaður fulltrúum Ráðstefnuskrifstofu Íslands, Samtaka um tónlistarhús, Samtaka ferðaþjónustunnar, Listahátíðar í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar Íslands, var settur á laggirnar í árslok 2003 til að vera stjórn Austurhafnar-TR til ráðgjafar um gerð Tónlistar- og ráðstefnuhússins. Í ársbyrjun 2006 var Íslensku óperunni boðin þátttaka í samráðshópnum. Hópurinn starfaði fram á sumar 2006 og hann skipuðu:

Matsnefnd Austurhafnar-TR við val á framkvæmdaraðila
Til að meta tilboð og tillögur sem bárust í samningskaupaferlinu var komið á laggirnar sérstakri matsnefnd Austurhafnar-TR í ársbyrjun 2005. Matsnefndina skipuðu:

  • Stefán Baldursson, formaður
  • Kristrún Heimisdóttir, fulltrúi borgarinnar
  • Orri Hauksson, fulltrúi ríkisins

Ráðgjafar matsnefndar Austurhafnar-TR
Samráðshópur stjórnar Austurhafnar
 var matsnefnd Austurhafnar-TR til ráðgjafar um rekstrarþætti og aðstöðu til tónleika- og ráðstefnuhalds við val á framkvæmdaraðila.

Stýrihópur um skipulagsmál á vegum Reykjavíkurborgar dæmdi skipulagsþáttinn með aðstoð skipulagssviðs borgarinnar. Hópinn skipuðu:

  • Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þáverandi borgarstjóri
  • Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi
  • Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi

Ráðgjafarnefnd arkitekta mat arkitektúr. Í nefndinni voru:

  • Albína Thordarson
  • Dagný Helgadóttir
  • Ásdís Helga Ágústsdóttir