Austurhöfn-TR ehf. er einkafyrirtæki í eigu ríkis og borgar sem vinnur að undirbúningi að byggingu Tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar við Austurhöfnina í Reykjavík.
Ríki og borg gerðu með sér samkomulag í apríl 2002 um að leggjast á eitt í þessu máli. Austurhöfn-TR ehf. var stofnað í apríl 2003. Íslenska ríkið á 54% í fyrirtækinu en Reykjavíkurborg 46%.
Vorið 2009, í kjölfar efnahagshrunsins í október 2008, eignaðist Austurhöfn félögin PORTUS og SITUS sem, ásamt dótturfélögum, höfðu með höndum uppbyggingu tónlistar- og ráðstefnuhússins að undangengnu svokölluðu samningskaupaferli. Tók Austurhöfn við öllum réttindum og skyldum sem fylgja samningum um byggingu og rekstur TR og eru systurfélögin PORTUS og SITUS nú dótturfélög Austurhafnar-TR ehf.
PORTUS sér annars vegar um framkvæmdir við tónlistar- og ráðstefnuhúsið gegnum dótturfélagið TOTUS og hins vegar um undirbúning reksturs og starfsemi í húsinu gegnum dótturfélagið AGO.
SITUS á aðliggjandi byggingarreiti að tónlistar- og ráðstefnuhúsinu. Dótturfélagið HOSPES er fasteigna- og rekstrarfélag hótels við Austurhöfn og CUSTOS er fasteigna- og rekstrarfélag annarra mannvirkja.
Austurhöfn-TR ehf. er til húsa í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík.



