Austurhöfn - tónlistarhús

Þú ert hérna Skipulagsmál Alþjóðleg hugmyndasamkeppni

Alþjóðleg hugmyndasamkeppni um skipulag

Vinningstillaga Gassa Arkitekter

Borgarráð Reykjavíkur efndi til alþjóðlegrar hugmyndasamkeppni árið 2001 um skipulag lóðar og nærliggjandi svæða við Austurhöfn vegna fyrirhugaðrar byggingar tónlitarhúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels (TRH). Tilgangur samkeppninnar var m.a. að fá fram hugmyndir að skipulagi svæðisins sem nýst gætu við framhaldsvinnu en ekki átti að leggja fram hugmyndir um nákvæma hönnun einstakra bygginga.

 Samkeppnislýsing

Mikill áhugi reyndist fyrir samkeppninni og bárust alls 44 tillögur frá innlendum og erlendum aðilum en dómnefndin var einhuga í því að veita 1. verðlaun arkitektunum Guðna Tyrfingssyni, Lotte Elkjær, Mikel Fischer-Rassmussen og Lasse Grosböl.

Raunhæf tillaga með mikla aðlögunarhæfni
Dómnefndin var einróma í afstöðu sinni til vinningstillögunnar sem þótti bæði raunhæf og fela í sér mikla aðlögunarhæfni þegar kæmi að byggingu TRH (tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels) og því flókna ferli sem útboð á einkaframkvæmd væri.

 Niðurstaða dómnefndar

Verðlaunaafhending vegna hugmyndasamkeppninnar fór fram í Tjarnarsal Ráðhússins í ársbyrjun 2002 jafnframt því sem efnt var til sýningar á öllum tillögunum 44 fyrir almenning.


Please install Flash and turn on Javascript.