Danska ríkisútvarpið, DR, byggði nýjar höfuðstöðvar í Örestað á Amager, þar á meðal tónlistarhús sem teiknað er af franska arkitektinum Jean Nouvel. Framkvæmdir hófust í nóvember 2002 og var húsið tekið í notkun árið 2009. Meðal þess sem vekur athygli er blái hjúpurinn sem umlykur salina, hálfgagnsær og gegndræpur dúkur, sem hægt er að varpa á myndum, auglýsingum eða sýningum.
- Aðaltónlistarsalurinn tekur um 1.800 áheyrendur í sæti, auk 225 í kórstæði. Þrír minni salir eru einnig í húsinu, ætlaðir fyrir æfingar, upptökur og tónleika.
- Tónlistarhús DR er alls um 26.000 m² að flatarmáli.
http://www.dr.dk/Koncerthuset/Om-koncerthuset/20080204141208.htm
http://www.dr.dk/OmDR/Besoeg_DR/DR%20Byen%20Fakta/20070108110921.htm




