Efnt verður til samkeppni um hönnun húsgagna í almenningsrými tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu. Verðlaunaféð er ein milljón króna og skilafrestur er 15. janúar á næsta ári.
Fréttir
Samkeppni um hönnun húsgagna í almenningsrými Hörpunnar
Skerpt á eldvarna- og öryggismálum
Lítið sem ekkert tjón varð þegar eldur kviknaði í dúk við útvegg tónlistarhússins Hörpu í gær og hafði starfsmönnum að mestu tekist að slökkva eldinn með handslökkvitækjum þegar Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom á vettvang. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem eldur kemur upp í Hörpunni og því verður nú skerpt á öllum eldvarna- og öryggismálum á svæðinu.
Lagfæringar á glerhjúp eiga ekki að seinka opnun Hörpu
Rannsóknir á álagsþoli sexstrendinganna, sem mynda glerhjúp suðurhliðar Tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu, hafa leitt í ljós að veggurinn stenst ekki mesta vindálag sem búast má við á næstu 50 árum. Að dómi aðalverktaka hússins, ÍAV, er nauðsynlegt að taka vegginn niður og endurbyggja. Að þeirra mati mun þessi framkvæmd ekki seinka opnun hússins í maí á næsta ári.
Samkeppni um nýtt tónverk til flutnings við opnunarhátíð Hörpu
Nú stendur yfir samkeppni á vegum Tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu og Sinfóníuhljómsveitar Íslands um nýtt tónverk sem frumflutt verður við opnunarhátíð Hörpu í maí 2011.
Tónlistarstjóri Hörpu ráðinn
Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanóleikari hefur verið ráðin tónlistarstjóri Hörpu en alls sóttu 24 um starfið. Capacent hafði umsjón með ráðningarferlinu.
Síða 1 af 13




Fréttir