„Það er skoðun okkar að kaup svissneska verktakafyrirtækisins Marti Holding á IAV sé jákvæð fyrir byggingu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu“, segja Stefán Pétur Eggertsson og Pétur J. Eiríksson, stjórnarformenn Austurhafnar og Portusar.
Austurhöfn og Portus hafa borið fullt traust til IAV og ekki haft efasemdir um að fyrirtækið geti staðið við skuldbindingar sínar um að ljúka við byggingu Hörpu á tíma. Fyrirtækjunum er þó ljóst að IAV hefur, líkt og flest íslensk fyrirtæki í byggingariðnaði, átt í fjárhagslegu andstreymi.
Hafi það skapað óvissu um getu IAV til að klára verkefnið er þeirri óvissu eytt með aðkomu Marti. Stjórnun framkvæmda og mannahald á verkstað er óbreytt og það ágæta fólk, sem unnið hefur að þessari miklu byggingu fær nú mikilvægan fjárhagslegan bakhjarl.




Kaup Marti á Íslenskum aðalverktökum styrkir Hörpuverkefnið