Framkvæmdir við bílastæðahús Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhússins, eru nú um það bil hálfnaðar og er gert ráð fyrir að það verði tekið í notkun næsta vor, um leið og Harpan. Framkvæmdir standa nú yfir við innakstursleiðina frá Kalkofnsvegi og einnig er verið að keyra inn jarðvegsfyllingu ofan á neðstu botnplötu hússins, alls um 12.000 rúmmetrum.
Bílastæðahúsið er á tveimur hæðum neðanjarðar og mun rúma 545 bíla. Þetta er mikið mannvirki því gert er ráð fyrir að í það fari um 24 þúsund rúmmetrar af steypu, 2.350 tonn af stáli og um 18.600 fermetrar af kúluplötum. Bílastæðahúsið er staðsett sunnan við Hörpuna og eru notuð um 500 ankeri, 12- 17 metra löng, til að halda byggingunni niðri, ásamt jarðvegsfyllingunni sem nú er verið að keyra ofan á neðstu botnplötuna, því sjór mun síast inn um jarðveginn.
Steypuvinnu við botnplötuna er að mestu lokið og einnig er búið að reisa um 3.000 fermetra af hvorri hæð bílastæðahússins. Er áætlað að framkvæmdir við bílakjallarann séu nú hálfnaðar og er stefnt að því að hann verði tilbúinn til notkunar næsta vor, um leið og Harpan.




Framkvæmdir hálfnaðar við bílastæðahús Hörpunnar