Iðnaðarráðherra kynnti sér á dögunum framkvæmdir við Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsið en vinna við glerjun hússins og fleiri verkþætti er nú í fullum gangi.
Það viðraði vel á Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra, eins og sjá má á meðfylgandi myndum, þegar hún kynnti sér stöðu framkvæmda við tónlistar- og ráðstefnuhúsið í fylgd þeirra Stefáns Hermannssonar, framkvæmdastjóra Austurhafnar, og Sigurðar R. Ragnarssonar, framkvæmdastjóra Austurhafnarverkefnisins hjá Íslenskum aðalverktökum.
Um 310 manns starfa nú við byggingaframkvæmdirnar og fer fjölgandi




Iðnaðarráðherra kynnir sér framkvæmdir við Hörpu