Í tilefni þess að síðasti stálbitinn af 11 í þak aðalsalar Tónlistar- og ráðstefnuhússins var hífður á sinn stað í vikunni héldu Austurhöfn og Portus reisugilli í dag að gömlum og góðum sið fyrir starfsfólk og góða gesti, þar á meðal menntamálaráðherra.
Hljómskálakvintettinn, sem skipaður er félögum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands, lék nokkur lög við upphaf athafnarinnar en því næst bauð Sigurður R. Ragnarsson frá Íslenskum aðalverktökum gesti velkomna fyrir hönd verktakans. Hann sagði verktakana stolta yfir þeim stórhug sem ríki og borg hefðu sýnt í vetur þegar ákveðið var að halda áfram með þetta einstaka verkefni og þeir væru einnig þakklátir að hafa vinnu- því það væri ekki sjálfgefið í dag. Þakkaði hann einnig framkvæmdastjóra Austurhafnar sem hefði róið lífróður fyrir verkefnið og hvatti jafnframt ráðherra og borgarstjóra, sem reyndar var fjarverandi athöfnina vegna annarra verkefna, til frekari dáða svo fleiri byggingarverkefni kæmust í gang.
Stefnt að opnun vorið 2011
Stefnt er að því að opna Tónlistar- og ráðstefnuhúsið formlega vorið 2011 og sagði Sigurður allt gert til þess að það mætti takast. Undir það tók Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar, og þakkaði verktakanum fyrir vasklega framgöngu þar sem öll vandamál væru leyst jafnóðum og svo yrði vonandi áfram. Stefán sagði væntingarnar miklar fyrir Tónlistarhúsið og ráðstefnumiðstöðina og fullyrti að þótt húsið þætti dýrt á íslenskan mælikvarða þá yrði fermetraverðið á lægsta verði sem þekktist fyrir svona byggingar í Evrópu en hljómburðurinn yrði aftur á móti með því besta sem þekktist!
Það fór heldur ekki milli mála þegar Hljómskálakvintettinn hóf leik að nýju að ávörpum loknum að hljómburðurinn í aðalsalnum lofar svo sannarlega góðu!
Ætlað er að endanlegt útlit verði komið á allt húsið eftir rúmt ár en það var 12.janúar 2007 sem fyrstu steypunni var rennt í mótin í grunni Tónlistar- og ráðstefnuhússins. Nú hyllir undir að uppsteypu hússins muni ljúka í þessum mánuði en tæplega 300 starfsmenn vinna um þessar mundir við bygginguna.




Reisugilli í dag