Austurhöfn - tónlistarhús

Þú ert hérna Fjölmiðlatorg Glerhjúpurinn rís

Glerhjúpurinn rís

Suðvesturhlið tónlistar og ráðstefnuhússinsVinna við glerhjúp tónlistarhússins hófst fyrir nokkru og er nú farið að glitta í fyrsta glerið. Kínverskir verkamenn á vegum framleiðanda glersins sjá um uppsetninguna og er áætlað að henni ljúki í október eða nóvember á næst ári.

Um 30 sérfræðingar sem kínverski glerframleiðandinn Linguin hefur útvegað starfa nú að uppsetningu glerhjúpsins á vegum Íslenskra aðalverktaka. Fleiri sérhæfðir gleruppsetningarmenn, á bilinu 80 – 100, eru væntanlegir á næstu mánuðum enda verkið umfangsmikið og flókið og má engu muna ef allt á að passa saman og því þótti öruggast að glerframleiðandinn legði til fagmenn til að annast framkvæmdirnar.

Vinna við uppsetningu stálprófíla sem bera glerveggina hófst í apríl síðastliðnum en áætluð verklok við húsið velta nokkuð á því hversu vel gengur með uppsetningu glerhjúpsins. Gert er ráð fyrir að byggingin verði tilbúin í febrúar 2011 og stefnt að því að taka húsið í notkun tveimur mánuðum síðar, eða í apríl 2011.