Fyrstu tónleikarnir í nýja Tónlistarhúsinu og ráðstefnumiðstöðinni við Austurhöfn fóru fram í dag þó svo að framkvæmdum við bygginguna sé hvergi nærri lokið.
Tónleikarnir fóru fram í einum af minni sölum hússins og þurftu tónleikagestirnir, hátt í 90 að tölu, að klæðast viðeigandi öryggisfatnaði, hjálmum, stígvélum og öryggisvestum, en atburðurinn markaði upphaf Íslensks tónlistarsumars sem Samtónn stendur fyrir í sumar.
Fram komu Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari og hljómsveitin Hjaltalín og stóðu tónleikarnir í um hálfa klukkustund og var gerður góður rómur að flutningi þeirra. Til að mynda þótti flutningur Víkings Heiðars á þjóðsöngnum í upphafi tónleikanna glæsilegur og stemningin sérstök.




Vel heppnaðir tónleikar