Austurhöfn - tónlistarhús

Þú ert hérna Fjölmiðlatorg

Fréttir

Samkeppni um hönnun húsgagna í almenningsrými Hörpunnar

inni-minni-webEfnt verður til samkeppni um hönnun húsgagna í almenningsrými tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu. Verðlaunaféð er ein milljón króna og skilafrestur er 15. janúar á næsta ári.

Nánar...

Skerpt á eldvarna- og öryggismálum

HarpanLítið sem ekkert tjón varð þegar eldur kviknaði í dúk við útvegg  tónlistarhússins Hörpu í gær og hafði starfsmönnum að mestu tekist að slökkva eldinn með handslökkvitækjum þegar Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom á vettvang.  Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem eldur kemur upp í Hörpunni og því verður nú skerpt á öllum eldvarna- og öryggismálum á svæðinu.

Nánar...

Lagfæringar á glerhjúp eiga ekki að seinka opnun Hörpu

Suðurhlið hússins er til hægri á myndinni en það stálvirki þarf að taka niður.Rannsóknir á álagsþoli sexstrendinganna, sem mynda glerhjúp suðurhliðar Tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu, hafa leitt í ljós að veggurinn stenst ekki mesta vindálag sem búast má við á næstu 50 árum.  Að dómi aðalverktaka hússins, ÍAV, er nauðsynlegt að taka vegginn niður og endurbyggja. Að þeirra mati mun þessi framkvæmd ekki  seinka opnun hússins í maí á næsta ári.

Nánar...

Samkeppni um nýtt tónverk til flutnings við opnunarhátíð Hörpu

Viadstudio - violinNú stendur yfir samkeppni á vegum Tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu og Sinfóníuhljómsveitar Íslands um nýtt tónverk sem frumflutt verður við opnunarhátíð Hörpu í maí 2011.

Nánar...

Tónlistarstjóri Hörpu ráðinn

Steinunn Birna RagnarsdóttirSteinunn Birna Ragnarsdóttir, píanóleikari hefur verið ráðin tónlistarstjóri Hörpu en alls sóttu 24 um starfið. Capacent hafði umsjón með ráðningarferlinu.

Nánar...

Síða 1 af 13